REGNBOGANS LÍF 🌈
Við Regnbogann
þau bíða
Í tjullpilsi og bleikum bol
með lakkaðar neglur
og marglitað hár,
með glitrandi varir
og augnskuginn blár.
Í dag þau eru drottningar
en sum þau eru prinsessur.

Þeirra líf er þó ekki alltaf létt,
viðurkenningin
til að elska
þann sem þau elska
er stundum átakanleg.
Hatursorð, fyrirlitning,
augngotur frá ókunnugum
særa og
valda uppnámi
í sálinni.

“Hver ert þú að dæma
hvernig aðrir lifa,
hvern aðrir elska
því ást er ást
sama hvern við elskum”.

Lífið væri svo miklu betra
ef við meðtökum, fræðumst
og elskum manneskjuna
eins og hún er
því lífið er allskonar,
lífið er eins og regnboginn,
marglitur og fallegur.🌈

Lífið er allskonar💛❤️💚💙💜  
H.Hildiberg
1963 - ...
Hinsegin dagar 🌈
2022


Ljóð eftir H.Hildiberg

Sumar.
Úrhellið
Þokan.
Mót vindinum
Tækniöld
Gluggað í blöðin
Tindrandi stjörnurnar
Frjósemi hugans
Sumarið
Í sólinni
Regnið
Kollurnar á öldunum
VORIÐ
TANFAR
PEST
Vor
”ÞAÐ ER VON”
Druslan
Grátbólgin augu
Öfugmæla vorbræðingur
Sólin
Feigðin
Eitt augnablik
flöktandi skuggar
Dyrasíminn
Draugar fortíðar
Brostnar vonir
Tregatárin
HIMNARNIR FALLA
Ljóð
Sonur
Blóðrauð tár
Karp um guði
Brostið hjarta
Ömmustrákur
Ömmustúfur❤️
Brimið og vindurinn
Nýfallin mjöllin
Sorgin
Nístingskaldur vetur
LITLA SNÓT ❤️
Ljósið
Hver er tilgangurinn…
REGNBOGANS LÍF 🌈
Einmana sál
Rigningardagur
Hversu sárt.
Haustgolan
Brot úr hjartanu.
Rauði stóllinn
Dimmur dagur
Morgunskíman
HAMINGJULANDIÐ
Haustið
Fegurð jökulsins
Hugarburður
Fegurð náttúrunnar
SEXTUG