Tálsýn
Ég horfði á laufskrúðuga tréð
speglast í vatninu.
Gárurnar röskuðu myndinni svo
að er eg leit upp
og sá beinabera armana,
varð mér ljóst
að spegilmyndin hafði verið
tálsýn ein.  
SJaNa
2004 - ...
Hver hefur ekki verið blindaður af ytri fegurð einhvers?


Ljóð eftir SJöNu

Kaffidrykkjumaðurinn
Sandhólar
Tálsýn