Sunnudagur
Venjulegur dagur sem líður hjá
eins og allir hinir.
Fæðist,deyr og hverfur
eins og mennirnir
sem nutu birtu hans.

Smá ljósgeisli
sem smaug í gegnum myrkrið,
og yfirbugaði það að lokum.
Lýsti allt upp
gæddi allt litum,lífi,
dó svo hægt út og slökknaði.

Bak við hann liggja margir dagar,
framundan enn fleiri.
En hver þeirra breytir öllu
hjá einhverjum

kaktus  
kjartan
1973 - ...


Ljóð eftir kjartan

Sunnudagur