Hún gufaði upp
Þokan læddist
niður dalinn
og sveipaði hann
gráum feldi,
sem var gatslitinn,
hélt hvorki
vatni né vindi.
Sólin þokaði sig
upp yfir fjallsbrúnina
og hellti geislum sínum
yfir þokubakkann
sem flosnaði upp
í miðjum hlíðum.
niður dalinn
og sveipaði hann
gráum feldi,
sem var gatslitinn,
hélt hvorki
vatni né vindi.
Sólin þokaði sig
upp yfir fjallsbrúnina
og hellti geislum sínum
yfir þokubakkann
sem flosnaði upp
í miðjum hlíðum.
Bjarmi frá nýrri öld 2001
Allur réttur áskilinn höfundi
Allur réttur áskilinn höfundi