Sólargeislar veraldar
Sólargeislar veraldar eru undur.
Undur sem fá hjörtun til að brosa.
Brosa á móti
þessum skæru bláu
þessum dimmu brúnu
þessum mógrænu og gráu
þessum björtu augum
sem á þig horfa
og hrífast með.

Sólargeislar veraldar lýsa okkur
í gegnum þrautir og sorgir.
Kynna okkur fyrir nýrri veröld
sem kennir okkur
að staldra við
að líta til baka
og skilja tilgang veraldar okkar.

Þessi skæru bláu
þessi dimmu brúnu
þessi mógrænu og gráu
þessi björtu augu
þessi augu barna okkar.  
Áróra Hrönn
1970 - ...


Ljóð eftir Áróru Hrönn

Hafið
Sólargeislar veraldar