Mistök
Afhverju ertu svona grimmur?
gerði ég eitthvað rangt?
Þú horfir á mig dimmur
og gengur í burtu langt

Ef ég bara vissi
hvað væri að
góðan vin ég missi
því ég um það bað!

Er þér alveg sama
að tár mín stanslaust renna?
sit ég hér og stama
og allt er mér að kenna!?

viltu ekki stinga fastar
inn í litla hjartað mitt?
Tekur það og út því kastar
haltu fast um hjartað þitt!  
Erna
1983 - ...


Ljóð eftir Ernu

Mistök
Sadness
Til Pabba