Betlikerlingin
Hún hokin sat á tröppu, en hörkufrost var á,
hnipraði sig saman, uns í kufung hún lá,
og kræklóttar hendurnar titra til og frá,
um tötrana fálma, sér velgju til að ná.

Og augað var sljótt sem þess slokknað hefði ljós
í stormabylnum tryllta, um lífsins voða-ós
það hvarflaði glápandi, stefnulaust og stirt,
og staðnæmdist við ekkert - svo örvæntingarmyrkt.

Á enni sátu rákir og hrukka, er hrukku sleit,
þær heljarrúnir sorgar, er engin þýða veit.
Hver skýra kann frá prísund og plágum öllum þeim,
sem píslarvottar gæfunnar líða hér í heim?

Hún var kannski perla, sem týnd í tímans haf
var töpuð og glötuð, svo enginn vissi af,
eða geimsteinn, sem forðum var greyptur láns í baug,
- en glerbrot var hún orðin á mannfélagsins haug.


 
Gestur Pálsson
1852 - 1891


Ljóð eftir Gest Pálsson

Ég skil mig ekki - Alltaf hlýt ég unna
Íslands minni
Ég er þreyttur
Ég
Betlikerlingin