Dyr
Þegar
ég sá þig
þú opnaðir dyr haustsins
með persónuleika þínum

þegar
þú nálgaðist
þú opnaðir dyr vetrar
með galsa þínum

Þegar
þú talaðir
þú opnaðir dyr vorsins
með brosi þínu

Þegar
Þú horfðir
þú opnaðir dyr sumarsins
með augum þínum

Þegar
við snertust
þú opnaðir dyr hjartans
með sjálfum þér

 
Þórður
1965 - ...


Ljóð eftir Þórð Martein

Dyr