Draumaheimur
Ef ég gæti elskað miklu meira,
myndi ég elska allt af lífi og sál.
Ef ég gæti gert allt sem mig dreymir,
hverjir yrðu draumar mínir þá?
Ef ég gæti fundið allt svo fallegt,
yrði ég þar alla mína tíð
því ef ég gæti ort um allan heiminn
hvernig yrði heimurinn í því?
En hvað ef allt það vonda myndi hverfa,
ást og allir yrðu glaðir þá.
Þá held ég nú að einhver myndi segja;
Verði allt aftur eins og það var þá  
Valdís Þórðardóttir
1987 - ...


Ljóð eftir Valdísi Þórðardóttur

Draumaheimur
Smám saman nálgast