Þegar þær sofna..
..sögu hef ég sagt litlum tveim
bláu augu þeirra lokast senn
erfiði og ergelsi í þessum heim
ekki tökum hefur náð á þeim enn..

Ég elska að horfa á ykkur sofna
sjá friðinn slaka á ykkar andlitsdráttum
sjá merki dagsins á ykkur dofna
heyra engar áhyggjur í ykkar andardráttum  
ArnarsA
1968 - ...
Ég hef ort mörg ljóð um dætur mínar, þetta er um tvær þeirra yngstu.
Önnur bíða betri tíma að birtast..


Ljóð eftir ArnarsA

Vitinn í landi
Unglingar og börn
Glimp in the eye
Nærvera, snerting . . . ORÐ
Áhrif
Þegar þær sofna..