Dimmalimm
Hún er sem svanur fegurst allra fugla,
syndir stolt á vatninu, svipast eftir ást,
kvakið hennar fallegt, vængir fríðir.
Hún er hvít, fögur snót sem snjóugla,
skimar um í trénu sínu, svipast eftir ást,
sér strákinn er Eros hitti, honum stríðir.
Hún er stúlka, gaman þykir að rugla,
í stráknum vitlausa sem henni brást,
kemur tár, kemur bros, koma árstíðir.
Hún er sem baldursbrá fegurst allra blóma,
blöðin slitna er elskhugar leita eftir ást.
Elskar mig, elskar mig ekki, elskar mig,
Hún er sem laglína með ljúfa fagra hljóma,
melódísk, músíkölsk, og allir að henni dást,
laglína sem fer í minnið og þar festir sig.
Hún er sem leikrit sem fær alltaf góða dóma.
Leikrit sem fjallar um viðfangsefnið ást.
Leikrit sem minnir mig á að ég elska þig.
Hún er sem gamlárskvöld í stór brenna,
túristarnir koma hafa ei séð brennu slíka,
kröftug, brjáluð, kraftmikil og ofsaleg.
Hún er sem skvísa en þó engin glenna,
dansar á gólfinu dansinn chacha mika.
æi takt við tóna, hröð, örugg og unaðsleg.
Hún er sem ástin fegurst allra kvenna,
andlit hennar fagurt og búkur hennar líka.
Skemmtileg, gáfuð, sniðug og yndisleg.