Stelpa
Ætli ég sé ekki stelpa
Með brostið bros
Brákað hjarta
Beittar tifinningar
og brennheitar varir?

Ætli ég sé ekki stelpa
Með brostna drauma
Brákaðar vonir
Beittar væntingar
og bláköld vonbrigði?

Ætli ég sé ekki stelpa
Með brostið traust
Brákaða sál
Beittar hugsanir
í bláböldum raunveruleika?

Ætli ég sé ekki stelpa
Með brostna lífslöngun
Brákaðan tilgang
Beittan skráp
og brennheita þrá?

Ætli ég sé ekki stelpa
Með brostna þolinmæði
Brákaða viðmiðun
Beitta dóma
og blákalda tilætlunarsemi?

Ætli ég sé ekki bara
venjuleg ófullkomin stelpa?
 
Kristjana
1989 - ...


Ljóð eftir Kristjönu

Stelpa
Lífið?