Hringrás Lífsins
Hin eilífa hringrás lífsins:
ég fer fram og aftur, aftur og fram
"Hann var af moldu kominn"
eru hin eilífu orð,
"og að moldu verður".
Hvernig ætli það sé?
Að vera grafinn,
að rotna og vera etinn,
í líkkistu í jörðu,
að verða að mold,
eða öðru.
Ég kýs að brenna,
að brenna í lifanda báli,
að verða að ösku,
sem dreyft er um,
á mína allbestu staði.
Ég vil brenna!
 
Harpa ragnarsdóttir
1990 - ...


Ljóð eftir Hörpu

Hringrás Lífsins
Heilagi maðurinn