Ég ann þeim einum
Þetta ölvaða rökkur
þetta siðblinda líf.
Þessi einhyggja
þessi þrá
sem sefast ekki.
Ég vildi ég væri munkur
búdda
Guð.
Ég lifi í afmörkuðu rými
eilífðarinnar
og geðveikin er
griðastaur minn.
Þú
gyðjan í norðri
þú annarlega strönd
ert álengdar
og gælir við
geðveiki mína.
þetta siðblinda líf.
Þessi einhyggja
þessi þrá
sem sefast ekki.
Ég vildi ég væri munkur
búdda
Guð.
Ég lifi í afmörkuðu rými
eilífðarinnar
og geðveikin er
griðastaur minn.
Þú
gyðjan í norðri
þú annarlega strönd
ert álengdar
og gælir við
geðveiki mína.