DIMMBLÁ
sé alltaf fyrir mér brosið þitt
feiminn, lítur niður
sterkur og stór
finn fyrir snertingunni
hendur þínar láta mér líða eins og fallegustu konu í heimi
stórar æðaberar siggrónar
dökkt úfið hárið minnir mig á klettana og sandinn
hvít húð þín á kaldann jökulinn
dimmblá augun á myrkan sjóinn svo óendanlega stóran
berð af öðrum, með höfuð og herðar yfir alla
hafsjór af tilfinningum
hafrót í sálinni
skriður af minningum sem hellast yfir mig
og leyfa mér ekki að gleyma þér