Leiði
Fáranlega líf
sem leikur mig grátt
hvað í fjandanum er að gerast
ég verð að taka það í sátt

Ég skil ekki af hverju
ég skil ekki hvað
hvað í fjandanum er að gerast
hvað í fjandanum er að

Af hverju ég?
spyr ég aftur og aftur
ég get ekki meir
þrotinn er mér allur kraftur

Að gefast upp
er þó ekki um að ræða
eftir allt þetta strögl
hlýt ég eitthvað að græða  
Alexandra
1978 - ...


Ljóð eftir Alexöndru

Leiði
Lexía lífsins
Barnaþula