Palisanderskviða hin síðari
Ég neita. Neita.
Að taka þátt í palisanderskapphlaupinu mikla.
Ég neita. Neita.
Að kasta minni pyngju í hýtina, húsasmiðjuna eða bykó.
Ég neita. Neita.
Að kasta minni pyngju í hýtina, flísabúðina Vídd.

Plastfólk en alls ekki plastparket. Ój ój, aldrei. Aldrei.

Palisander, palisander, við viljum palisander.

Ég er bara alþýðuskáld og aumingi. Og nota minn aur í vitleysu.

Ój, ój, ég er bara aumingji,
á ekkert hús
engan palisander.

Palisander allt í kring.
Palisanderinn umvefur mig.
Dæmir mig.

Afhverju ertu ekki palisandersfíkill?
Ha? Afhverju?

DÆMDUR. Dæmdur af palisandersfíklunum.

Aldrei verið dæmdur af öðrum fíklum.

Að tilheyra ekki þeirra RÖÐUM.

Röðum. Reðum. Röðum. Ríðum. Röðum. Ríðum rörum.

Röðum palisander í allan dag.
Röðum palisander oná palisander.

Ekki svona palisander. Oj Oj.
Oj Oj. Ekki svona.

Nýjan palisander. Meiri palisander.
Betri palisander. Strax, strax. Meira, meira.

Verð að fá meira. Verð að fá flottara. Flottara en hinir.
Betra en hinir.  
Jens Sigurðsson
1977 - ...


Ljóð eftir Jens Sigurðsson

[þýðing] Ég get ekki hætt
Palisanderskviða hin síðari
[ Eyða ]