Kyrrð
Sólin skín,
ég hugsa um þig.
Þú veist það,
þú finnur það.

Undarleg tilfinning
hríslast um þig,
þú lítur upp í himininn,
við horfum á sömu sólina.

Skyndilega dimmir,
þú hverfur,
nei, nei ég vil þetta ekki
- skothvellur bergmálar
í kyrrðinni.
 
Ásta Hermannsdóttir
1987 - ...


Ljóð eftir Ástu

Gamla dugga
Ásýnd
Önnur veröld
Kyrrð
Undir yfirborðinu