Ljóð.
Ég les moggann við eldhúsborðið og drekk gamalt kaffi
í rólegheitum morgunsins. Stafirnir í blaðinu dansa
og mynda stórfréttir eða pólitískar skoðanir fyrir augum mér.
Kötturinn stekkur upp á borðið og veiðir frá mér lesturinn
með því að leggjast ofan á blaðið.
Hann horfir á mig lygnir aftur demantsaugum sínum, brosir og malar hátt.
Ég strýk honum nokkra stund og lít á klukkuna.