Friðarljós
Ég fylltist ljósinu skæra
og flaut til þín,
sem frelsaðir anda minn
í leitinni miklu.
Við rætur sedrusviðarins
settist ég og beið,
eftir svari þínu, Drottinn.
Þrjár himneskar verur, birtust
og fylltu anda minn,
himneskum litum.
Forn vísdómur augna þeirra
færðu mér frið kærleikans.
“Við erum með þér,í hjarta þínu
ást okkar mun fylgja þér,
í hverju spori
til ljóssins heima”.