Nútímahetjur III: Carrie Bradshaw
Heimspekipistla skrifar og gott kynlíf þekkir
Föngulega karlmenn í kippum að sér trekkir
Carrie Bradshaw er sönn nútímahetja
þó sambönd og reykingar séu hennar veiku hlekkir
Carrie komdu nú klúrum kynlífspistli frá þér
Ég veit að þig langar til þess, ég sé það á þér
Og fullyrtu um samskipti kynjanna í The Star
en reyndu svo að halda e-m karlmanni hjá þér
Carrie hvar felur hann sig draumaprinsinn?
Láttu Charlotte kynna fyrir þér ríkan vin sinn
Því varla er úr þessu nokkur von
þú ert jú vel yfir þrítugt og orðin pínu gisin
Æi, kæra Carrie kveddu nú bráðum Mr.Big
Þú átt miklu betra skilið ,,hí is södds a pig”
Allt þetta samband er steypa, er ríður þér á slig
Taktu þér tak, veldu Adian, svona bara fyrir mig
Carrie farðu nú í eitthvað fáránlega fleygið
við 2nd hand hatt og D&G pils sem er snjóþvegið
Manolo Blahnic skóna og með Prada veskið
Já stelpur, Carrie sýnir ykkur hvað þið megið
Carrie fáðu þér nú einn cosmo og kíktu svo út
Með stelpunum á Samba, ekki vera niðurlút
Því kannski eru það örlögin sem ráðast í kvöld
ellegar getur þú dreymt þig burt frá sorg og sút
Hátískan er í hávegum höfð og heimsborgaraháttur
Carrie sýndu smá class ekki vera auðveldur dráttur
Og leitaðu nú að hinum eina sanna og rétta
Ég veit meira að segja að svínið Mr.Big yrði sáttur

Til heiðurs íslenskra kvenna.