,,Af því bara\"
Drengurinn var sendur fyrir dóm
til saka sinna að svara.
,,Því deyddirðu þennan mann?” var spurt
hann svaraði ,,Af því bara”
Flóðgáttir augnanna opnast
en hugurinn tómur sem fjara.
,,Því ferðu frá mér væna mín?”
hún svaraði: ,,Af því bara”
Af því bara!
Af því bara!
Eins og allir aðrir svara
Af því bara!
Ausa menn úr bátnum sumir
þó í hálfukafi kunni að mara.
,,Því yfirgefur þú þennan bát?”
hann svaraði ,, Af því bara”
Sumir safna, byggja brunn
aðrir standa og stara.
,,Því leggur þú ekki hönd á plóg?”
hann svaraði ,, Af því bara”
Af því bara!
Af því bara!
Eins og allir aðrir svara
Af því bara!
Bókstafstrúarmenn berjast gegn því
aðrir vilja giftingu samkynhneigðra para
,,Af hverju ertu á móti staðfestingu elskenda?”
hann svaraði ,,Biblían og af því bara”
Feministar vilja PepsiMax gosdrykkju banna
jólasveinn sé auglýstur sem klámvædd markaðsvara
,,Mun fólk fá sér pepsi, klámmynd og nauðga?”
þær svöruðu ,,Já, samkvæmt sænskum rannsóknum og af því bara”
Af því bara!
Af því bara!
Eins og allir aðrir svara
Af því bara!
Bacalárusar tveir B.A ritgerð kynna
benda á kynjatölfræði frétta sé tjara.
,,Eiga fréttir að vera jafnréttisstofa?” er spurt
þær svara ,,Já, prump, 50% bla og af því bara”
er þessum konum spyr ég alvara?
Því lími ég saman þetta ljóð?
Leyfi mér að benda á lífsins brandara
því ei mér er alvara og skítsama um bót allra kjara?
Nei, af því, af því, af því bara!
eins og allir aðrir svara...