Sóley
Tíminn er eins og fljót. Líður hjá og rennur til sjávar
þegar ég sá þig fyrst þá stöðvaðist tíminn
en fljótið rennur stöðugt fram
Blómin í haganum og morgundöggin
það ert þú kona sem átt mitt hjarta
öll fljót renna til sjávar
ég verð þar þegar þú kemur
Þá verður langskip við ós
þar mun víkingur taka á móti þér
og sigla á þann stað
þar sem tvö hjörtu verða eitt
þegar ég sá þig fyrst þá stöðvaðist tíminn
en fljótið rennur stöðugt fram
Blómin í haganum og morgundöggin
það ert þú kona sem átt mitt hjarta
öll fljót renna til sjávar
ég verð þar þegar þú kemur
Þá verður langskip við ós
þar mun víkingur taka á móti þér
og sigla á þann stað
þar sem tvö hjörtu verða eitt