Það sem gerist í New York...
Dyrnar opnast og þú stígur varfærnislega inn
í þetta reykmettaða hálfspeglaherbergi.
Deyfð ljósin skína á dökk bláa veggina
og skuggarnir mynda óhugulegar verur
eða eru þetta fastagestirnir?
Þetta er allt eitthvað svo óljóst
uns einhver rýfur þögnina
með því að rífa blað...
nei, þetta var nakinn miðaldra maður
með slaufu og hormottu
að standa upp úr leðursófasetti.
Hann bíður þér til sætis á barnum
og blandar fyrir þig alvöru mjólk
og færir þér skiptimynt fyrir skyndimynd,
bendir þér á klefann þinn.
Þú þorir ekki öðru en að hlýða,
og sest í þennan einkaklefa með
klósettpappír á hægri hönd
og peningamæli á vinstri hönd.
Leiðbeiningarnar á veggnum
biðja þig vinsamlegast að klæða þig í galla
og að því loknu virðist líkaminn dofinn – af spennu?
Er þú stingur sveittum 100 kalli í raufina
uppljúkast veggir og þú ert sjálfur til sýnis,
á sviði og barþjónninn hann drottnar – og undramjólkin lekur niður munnvikin.
Augun lokast, augun opnast
og síðasta minningin áður en þú vaknar
á umferðaeyju, er dvergur með leðurgrímu
að slá honum beinstífum í andlitið á þér.

Þetta var aðeins upphafið... en það sem gerist í New York, helst þar.