Passíu - sláttur - sálmur IX
Á Vatnsendahæðinni er verið að krossfesta akfeitan mann
og allir á bækistöðinni eru sammála
um að þetta sé ,,djöfulli gott á hann\"
Þetta er dagur fallegur, en hann var dreginn sofandi út úr bíl
og Henrik segir ,,djöfullinn hann ætlaði að selja ljóðabækur Daða til Nýhil\"
En af krossinum er öskrað ,,Guð, hef ég ort mitt hinsta ljóð?\"
og himnarnir opnast og mælt er
,,sannlega segi ég yður já, en djöfull voru Nútímaljóðin þín góð\"