geðveikishjal I
Ég sit berrassaður í rúllukragabol
á ströndinni fyrir aftan Kleppspítala
og kaldur sjórinn leikur við
neðri hluta líkama míns.
Sólskins- og skuggablettirnir
færast flöktandi um Viðey eins og
í ambiantdraumi frá 10.áratugnum...
þó er sjórinn spegilsléttur.
Ég stend upp og kemst í takt við raunverleikann
þegar ég átta mig á því
að hafrekið sprek og mávahræ
er farið að slást í punginn á mér.
Úr fjarska greini ég öskur frá sjúklingi,
sem er eins og forðum sprautaður niður
á knattspyrnuvellinum þar sem starfsmenn
og vistmenn etja kappi,
þeir sprauta yfirleitt besta sjúklinginn niður
þegar þeir eru komnir þremur mörkum undir.
Ég lýð ekki slíkt óréttlæti og geri mér upp kvilla
og fæ að vera með enda berrassaður,
skora sigurmarkið og þó það hafi skyggt á gleðina
að ég fékk gula spjaldið fyrir að klæða mig úr treyjunni
þá fann ég hvernig það kom blóð í liminn
þegar sjúklingarnir lögðust ofan á mig í hrúgu eftir leikinn.
Ég er lánssamur þrátt fyrir alla mína galla,
það er ekki hlaupið að því að vera rauðhærður
og samkynhneigður - og það í sama lífinu
en ég hef samt fram að þessu haldið mig
réttu megin við strikið andlega.