ÚLMA 3
nú! þessi afmarkaða heild
við erum smástund!
takið þessa berlínargrátmúra
mig langar að sjá
við erum smástund!
takið þessa berlínargrátmúra
mig langar að sjá
athugasemdir frá höfundi:
þetta ljóð er algjörlega byggt á tilfinningu,
án þess að ég vilji fjötra hugsun ykkar
með skilgreiningum og skýringum, takið eftir
óhugnalegri endurtekningunni í lok ljóðsins,
allt að því draugaleg í óafmarkaðri afturgenginni
nærveru sinni: hvar endar ljóðið og hvar upphefst veruleikinn?
láttu mig fljóta til ÚLMA 4, drauma þinna, og gerðu mig kunnugan um staðhætti
æ! fjötrar!