Kveðja frá Rimbaud
Ég var hættur að yrkja
og það hefði verið mátulegt á ykkur
Að missa frá ykkur Rimbaud
áður en hann yrði frægur
Áður en hann leggðist í mannsal
og áður en hann dæi
Það hefði verið mátulegt á ykkur!
Bestu ljóðin mín
og bestu lygarnar ykkar:
Ó vér morðingjar
minnumst mín
Ég er forseti Bandaríkjanna
og ég er trúaður
og ég er trúðaður
Ó vér ræningjar
ég er Bastian
Ó vér bítskáld
og ég hverf
Ó mæ godd
og ég verð
Ég hefði getað sagt
ég sökkvi mér í þér
En ég er hættur að yrkja
ég sel litla svertingja
Ég sef hjá fallegustu konunum
og ég er Bastian sjálfur
Hann er ég
og það hefði verið mátulegt á ykkur
Að missa frá ykkur Rimbaud
áður en hann yrði frægur
Áður en hann leggðist í mannsal
og áður en hann dæi
Það hefði verið mátulegt á ykkur!
Bestu ljóðin mín
og bestu lygarnar ykkar:
Ó vér morðingjar
minnumst mín
Ég er forseti Bandaríkjanna
og ég er trúaður
og ég er trúðaður
Ó vér ræningjar
ég er Bastian
Ó vér bítskáld
og ég hverf
Ó mæ godd
og ég verð
Ég hefði getað sagt
ég sökkvi mér í þér
En ég er hættur að yrkja
ég sel litla svertingja
Ég sef hjá fallegustu konunum
og ég er Bastian sjálfur
Hann er ég