Vopnin kvödd
Ég tek af mér leðurgrímuna og lít í brotinn spegilinn,
og meðan ég leysi gaddaólina af hálsinum
og dreg gómsæta þyrnana frá strákslegu andliti hans,
finn ég sjálfan mig hvísla í vangogh-eyra hins múlbundna hlekkjaða Jakobs
er hann liggur tjóðrandi kúgaður
af trylltustu órum mínum stórum:
Fyrirgefðu!
Ég þekki þig ekki nógu vel
til að fara svona illa með þig.

Minnist mín, listamannsins, sem geisladisks, sem snerist alltaf um sjálfan sig, en flutti þó öðrum tónlist í leiðinni.