bakkusarbæn
með brenndan svörð
og brotnar brýr að baki
breyskur stend ég
orðinn einn
sýndu mér leið
mér lokuð eru sund
gefðu mér guð
að leiðin verði greið
stend upp þótt
oft á tíðum hrasi
berst við bakkus
hjálplaus bara einn
gerðu það guð
taktu burtu vín
veittu mér sýn
í gegnum botn á glasi
og brotnar brýr að baki
breyskur stend ég
orðinn einn
sýndu mér leið
mér lokuð eru sund
gefðu mér guð
að leiðin verði greið
stend upp þótt
oft á tíðum hrasi
berst við bakkus
hjálplaus bara einn
gerðu það guð
taktu burtu vín
veittu mér sýn
í gegnum botn á glasi