Blekkingarvefur
Nostursamlega
spannstu vef þinn
Lokkandi lygar
leiddu mig til þín
Örþunnur þráðurinn
sker mig inn að beini
Brot hjarta mins
liggja dreifð
Blinduð var ég
Lömuð er ég

og get mig hvergi hrært
 
Dimmblá
1979 - ...
Allur réttur áskilinn höfundi


Ljóð eftir Dimmblá

Misskilningur
Sláttur vængja minna
Dropatal
Blekkingarvefur