Ha?
Ég gekk yfir hafið
í leit að sýn,
Guðs náð?
þræddi tímans þráð
upp hafið, aftur, farið?
marið
barið

Ég sveif gegn um tímann og sá,
í brjósti sérhvers manns
var andi
þá ég skynjaði kærleik alls
Lifandi

Sá ég þó skugga margra,
brotinna hjarta mæðra
styrjaldar dauðra sona.
Hatandi, hlekktra, velsæmis,
hlýrra, heiðingja, vanhæfra,
elskandi, syrgjandi og svekktra
manna  
Luna
1983 - ...


Ljóð eftir Lunu

Ha?
Barátta
Missir