kvæðið um Mar.
kveður á djúpið,dægurbyrjun,
brothætt er skelin,
barningur manna,
borist á miðin,
boðungar fullir,
barist við öflin,
blóðs er krafist.
björt mey og hrein,
brýtur sæng við höfuð,
blómið er fölnað,
bátur er farinn,
botni er náð,
bylgjurnar lægja,
birtir um síðir,
blæbrigði skugga,
blíður dagur,
kveður á djúpið,dægurlok.
brothætt er skelin,
barningur manna,
borist á miðin,
boðungar fullir,
barist við öflin,
blóðs er krafist.
björt mey og hrein,
brýtur sæng við höfuð,
blómið er fölnað,
bátur er farinn,
botni er náð,
bylgjurnar lægja,
birtir um síðir,
blæbrigði skugga,
blíður dagur,
kveður á djúpið,dægurlok.