Súrialískt
Allt er svo óraunverulegt
ég vill ekki eyða tíma
án þín

Beinin mín verkja
ég er svo köld
ég er orðin svo þreytt
og svo aum

Reiðin bólgnar í mér
ég neita að finna örin
og sárin

Ég vill svo opna augun þín
því að ég þarf svo
að þú horfir í mín

Segðu mér að þú opnir þau
Gerðu það segðu mér

Stattu upp og farðu
farðu frá þeim
sem skilja ekki sálina
og eld þinn

taktu hendina mína
haltu fast
Og við göngum saman
Í gegnum eldinn
Í síðasta sinn

Opnaðu augun þín
gerðu það opnaðu
svo tilvera mín
sé raunveruleiki
 
Sara Ragnheiður
1990 - ...


Ljóð eftir Söru Ragnheiði

Súrialískt
þessi tími dagsins
Minn