Að ruglast í rúminu
Á Reykjavíkurvappi ruglaðist ég í rýminu,
leit í báðar áttir og þær voru eitthvað svo fjarstæðukenndar.
Ósamræmdar á allan hátt.
Himinninn var heiðskýr en sólina var ekki þar að finna,
heldur kældi hún sig í sjónum og gerði út af við þrjá fugla.
Hjartað skoppaði í takt við tónlistina úr nærliggjandi bíl og
mig sárkveið því að hann færi. Hvað verður um mig þá?
Straumlaus pumpa kveikir enga elda.
Þrátt fyrir að rýmið sem umkringdi mig, líkt og tindátar drottningar í vígahug,
var ekkert samband á milli tíma og rúms.
Það var það sem hristi upp í rúminu mínu. Hjónakornin, tími og rúm, verða að haldast í hendur.
Annars fer allt í steik.
Og þau eru einmitt skilin!
Þess vegna leið tíminn í engu samhengi við umfang veraldarinnar. Og ég alveg týndur, í óskiljanlegu rými.