Minningin ein
Minningu þína ég mun ætíð í mínu hjarta geyma,
Og þeim stundum er við áttum saman mun ég aldrei gleyma,
Rökkvið hellist niður og ég finn hve skrítið það er að vera án þín,
Ég lít út um gluggann og pæli í því hvort að þú saknir mín,
Mannlífið þagnar og loksins er komið kvöld,
og ég finn hvernig ljós þitt fjarar út líkt og aldan köld,
 
Halla
1987 - ...


Ljóð eftir Höllu

Helpless
Minningin ein
Lífið