G-angandi
Gangandi þunglamalegum klinkskrefum
Blístrandi, samfélagstvístrandi stefum
Myrðandi, niður um sig gyrðandi í klefum
Athöfn, kynferðisleg: tekinn af eldri refum
Blóðugar ermar, bundið hnúasárið
Hvað varð um börnin sem greiddu sér ekki um hárið?
Liggur í loftinu trygg, ljúf þvagangan
Þykkt ský - menningarlykt gerir mig svangan
Vigtin? Nei, Kíkt´inn og tékkaðu út fíkilinn... fangann
Morfín mýktin er betri en mannréttindagangan
Notaðar nálar, sýkt sprautusárið

Um ráfandi, káfandi á veggjum og staurum
Sláandi! Skríðandi betlandi -eftirlíking af maurum
Á Íslandi – menn ,,lánandi\", eftirsjáandi aurum
Hvíslandi, hrollur um hríslandi hjá höfuðpaurum
En hver skilur borgarstjórans blæti?
Er þú heyrir haustsins læti - við Kaffi Austurstræti.

Ég man hve allt var kaldlynt
í þessum heimi, en heyrði þig aldrei kvarta
því þú vissir um stað þar sem hæsta spaðaröð
trompar ekki eitt lítið hjarta