New York að næturlagi
Stórborgarljósin brenna (augun)
líkt og Bob forðum á Bleeker street
breiðstrætin og barirnir
blúsfylltir tónar og blue note beat
Þú átt þér þúsund einmana andlit
en að því virðist enga sál
líflaus þau liðast flest áfram
og þú aðeins gler og stál
Á hvaða langa fjólubláa gangi?
Í hvaða eimsemdar volæðis lyftu?
Í hvaða dimma skuggasundi...
misstu meistarar fyrri tíma trúna
á þér og lífinu
Já, mannhafið á miðri Manhattan
mest brenglað eða brotið
þetta aldar gamla epli
er ormfyllt bæði og rotið
líkt og Bob forðum á Bleeker street
breiðstrætin og barirnir
blúsfylltir tónar og blue note beat
Þú átt þér þúsund einmana andlit
en að því virðist enga sál
líflaus þau liðast flest áfram
og þú aðeins gler og stál
Á hvaða langa fjólubláa gangi?
Í hvaða eimsemdar volæðis lyftu?
Í hvaða dimma skuggasundi...
misstu meistarar fyrri tíma trúna
á þér og lífinu
Já, mannhafið á miðri Manhattan
mest brenglað eða brotið
þetta aldar gamla epli
er ormfyllt bæði og rotið
...