Hið ósýnilega hverfur
Hádramatísk sjálfsævisaga!
gargar ungur strákur
á Lækjartorgi,
með appelsínugulan
poka yfir öxlina,
um glerungsmissi og
þau átök sem fylgja því,
heldur hann áfram og fitlar
við fimmtíu kall í buxnavasanum,
honum langar í bland í poka,
veit þó full vel
hvernig það fer með tennurnar
þenur raddböndin og öskrar
á ammrísku:
Read all about it!
Dregur andan inn, lokar augunum
um stundar sakir
skröltir í sjoppuna.
gargar ungur strákur
á Lækjartorgi,
með appelsínugulan
poka yfir öxlina,
um glerungsmissi og
þau átök sem fylgja því,
heldur hann áfram og fitlar
við fimmtíu kall í buxnavasanum,
honum langar í bland í poka,
veit þó full vel
hvernig það fer með tennurnar
þenur raddböndin og öskrar
á ammrísku:
Read all about it!
Dregur andan inn, lokar augunum
um stundar sakir
skröltir í sjoppuna.