rökkur
það er eins og ég upplifi
næturnar þegar við lékum
glöð undir miðju tungli
og það er eins og ég sé þar
í rökkrinu bakvið vegg
að tala við þig um ástina
það er eins og ég viti
að þú ert ekki lengur
nema í minningunni
og það er ekkert
sem fær þig
til að koma aftur til baka
því þú ert farin
að heimsækja
nýju vini þína
sem munu sakna þín
um langar vetrarnætur
þegar þú ert farin
næturnar þegar við lékum
glöð undir miðju tungli
og það er eins og ég sé þar
í rökkrinu bakvið vegg
að tala við þig um ástina
það er eins og ég viti
að þú ert ekki lengur
nema í minningunni
og það er ekkert
sem fær þig
til að koma aftur til baka
því þú ert farin
að heimsækja
nýju vini þína
sem munu sakna þín
um langar vetrarnætur
þegar þú ert farin