fálki
ég er særður fálki
og flýg ei meir
notið mínar fjaðrir
í fjöðurstaf
þann sem flýgur hærra
en hæstu tindar
ég er vargsins bráð
og á ekkert eftir
flaug ég þó hærra
en allt sem var
en fljúga mun ég hæst
um hinn heiðríka sal
og flýg ei meir
notið mínar fjaðrir
í fjöðurstaf
þann sem flýgur hærra
en hæstu tindar
ég er vargsins bráð
og á ekkert eftir
flaug ég þó hærra
en allt sem var
en fljúga mun ég hæst
um hinn heiðríka sal