Nokkrar útleggingar af skoðunum eins af heimspekingum götunnar og nokkur heilræði þar að lútandi
Í heimspekiþönkunum heilann hann brýtur
hugsanir komast af stað.
Og allt sem að brennivínsbokkunni lýtur
böl? ja, það er nú það,

Með sálfræðikenningum sífellt hann reynir,
að sýna fram á það,
að kerlingarkroppurinn, hann á sér leynir
að kúra hjá veiti unað.

Og sálinar pólana sendast á milli
sækjast víst eftir því
Í norðri þær eldri líkama fylli;
í suðri þær fæðist á ný

En þú ert bara trúlaus,
hvað ertu að reyna?
þú kemst ekki á æðra svið.
Þú verður að vita hvað þú vilt meina
annars bíður hin eilífa bið;
þú kemst ei um hið gullna hlið.

Ei vilja vottanir trúlausum veita
virðulega himnavist
viljastyrk verður þú, kallinn að beita
ef vilt geta drottins tær kysst.

Kristnir, þeir ganga með krossinn í keðju,
keikir ei spyrja að því:
Ef drepið þeir hefðu son drottins með sveðju,
hefð\'ann dýrðlegur risið á ný?

En þú ert bara trúlaus,
hvað ertu að reyna
þú kemst ekki á æðra svið.
Þú verður að vita hvað þú vilt meina
annars bíður hin eilífa bið;
þú kemst ei um hið gullna hlið.
 
speóh
1972 - ...


Ljóð eftir speóh

Búrið
Nokkrar útleggingar af skoðunum eins af heimspekingum götunnar og nokkur heilræði þar að lútandi
Hannes
Til eilífðar