hraðabreytingar
Með því að flytja út á land
hægi ég á hraða mínum
gref stríðsöxi
baráttu upplýsingaöflunar,
tylli mér í sæti rólyndis
horfi á sveitalífið silast framhjá,
gefur mér hornauga
álítur mig utanaðkomandi aðskotahlut
sem þarfnast tilkomumikilla umbóta
eða einfaldlega að hrekja mig út
með heygöfflum, ljáum og kyndlum á lofti.

Með því að flýja úr hraðahelvítinu
þar sem hugsunin er trufluð,
lendi ég í samfélagi þar sem ekki er allt með felldu.
Kannski verð ég hrakinn aftur
eða tekst mér að kynnast púkum landsbyggðarinnar
og halda mér í rólegum straumi sældarlífsins?

Ég gríp vatnsfötuna og reyni að kæla mannskapinn.  
Jakob T.
1983 - ...


Ljóð eftir Jakob T.

umsögn
Fjöllin
Við
Þekktur
Draumurinn
Rauðinn
Vaknaðu
Hvað sem...
Villur vega
Horfinn
Vegurinn
Meðvitaður
Fjölskylda
Fyrir sunnan
Leiðir
Undirrót reiði
Undirrót gleði
Undirrót svika
Undirrót ástar
Lesist áfram
Lesist til baka
Spurning um mig
Augnabliksbrjálæði
Klaufi
Sagan
Athygli
Svart og Hvítt
Atvikið
Eltur
FMG
álfagleði
retta minninganna
mengun
engillinn
Sjórinn
kaós
oekia
að ná sambandi
grunneðli viljans
Stjórnun
Örfættni
aksturinn heim
hlaup, hopp og se...?
aumingjaskapur
Það er eitthvað að hjá mér
Innirigning
óFeður
óróleiki
Næturhrafninn
Við horfum á
Manstu?
Enginn Kjaftur
Veruleiki
Nútími
Söknuður
Vetrarmorgun
Kuldabolinn
Önnur minning
Rofin ermi
Lotterí
[ónefnt]
Draumleiki
Út-Exit
Eistnabönd
\"Hún\"
hraðabreytingar
Í júlí árið tvö þúsund og átta
Vor faðir
Álfastríð
Venjulegur
Þar sem grasið grær
Þrællinn
Spegilmyndin
Skilaboðin
Eigi leið oss
Fótspor í fönn
Miðjarðarsumar
Vorjafndægur
Fimmtíu og sjö