Á bekknum
\"Mig langar að gera byltingu,\"
viðurkenndi þybbin kona
fyrir ljótmjóum sálfræðingi.
\"Já,\" brosti hann feimnislega,
með kvenlegum hreyfingum,
\"það er kallað á fagmáli: Byltingakennd.\"
Þybbna konan,
sem vissi ekki hvort hún væri sjúk á sálinni,
eður ei, en taldi vissara að athuga málið,
missti út úr sér:
\"Það er byltingakennd, hversu
fáránleg athugasemd þetta er hjá þér!\"
og hló geðveikislega.
Samviskubit fór að naga hana granna.
Hægt og óþægilega.
viðurkenndi þybbin kona
fyrir ljótmjóum sálfræðingi.
\"Já,\" brosti hann feimnislega,
með kvenlegum hreyfingum,
\"það er kallað á fagmáli: Byltingakennd.\"
Þybbna konan,
sem vissi ekki hvort hún væri sjúk á sálinni,
eður ei, en taldi vissara að athuga málið,
missti út úr sér:
\"Það er byltingakennd, hversu
fáránleg athugasemd þetta er hjá þér!\"
og hló geðveikislega.
Samviskubit fór að naga hana granna.
Hægt og óþægilega.