að ganga upp guðsteppið
þegar ég hugsa til þín
missir hjartað úr slag
það væri svo sem í lagi
bara að þetta gerðist annan hvern dag
en þetta er orðið sem alversta kveisa
yfir lasleika þessum verð ég kvarta
ég veit að það er til allskonar ráð
fyrir gamalt og einmana hjarta
en skríða á hnjánum
er ekki minn stíll
nema að springi dekk
eða bili minn bíll
svo finnst um mér erfitt að hugsa til þess
að ganga með hring á hönd eða í nefi
allt þetta fólk svo í veisluna komi
og óþarfa hluti mér gefi
því ég þarf ekki blandara
né skúffur undir skó
eða hlusta á ræður og brandara
að hugsa til þess mér verður um og ó
og vill því við þessu öllum hlífa
að ganga inn gólfið á guðsteppinu
er sem ég væri sjálft fjallið
everest að klífa
nú ever rest ég mitt keis
búum saman ég hygg að sé gaman
kaupum okkur kofa á selfossi pleis
og lifum þar til endaloks saman
missir hjartað úr slag
það væri svo sem í lagi
bara að þetta gerðist annan hvern dag
en þetta er orðið sem alversta kveisa
yfir lasleika þessum verð ég kvarta
ég veit að það er til allskonar ráð
fyrir gamalt og einmana hjarta
en skríða á hnjánum
er ekki minn stíll
nema að springi dekk
eða bili minn bíll
svo finnst um mér erfitt að hugsa til þess
að ganga með hring á hönd eða í nefi
allt þetta fólk svo í veisluna komi
og óþarfa hluti mér gefi
því ég þarf ekki blandara
né skúffur undir skó
eða hlusta á ræður og brandara
að hugsa til þess mér verður um og ó
og vill því við þessu öllum hlífa
að ganga inn gólfið á guðsteppinu
er sem ég væri sjálft fjallið
everest að klífa
nú ever rest ég mitt keis
búum saman ég hygg að sé gaman
kaupum okkur kofa á selfossi pleis
og lifum þar til endaloks saman