Þinghús-Bar
Lengst úti á landi, í litlum bæ við Kirkjuhvamm,
er vina vertshús, vel og mikið því ég ann.
Á Þinghús-bar, þar glaum ég meta kann.
Ósjaldan höfðum setið & sukkað svívirðilega þar,
pælt í trú & pólitík og prísað Þinghús-bar.
Á Þinghús-bar, mitt annað heimili þar var.
Já, vinalegt vertshús, í annars vesælum smábæ.
Þegar súr, á Þinghúsið var ekki lengi’að “droppa bæ”,
á Þinghús-bar, mitt annað heimili þar var.
Kannski sat þar Kjartan með kaffið sitt & smók.
Hann talsvert virðir tónlistina; telur hana ekkert djók.
Á þinghús-bar, ég nám um lífið nam.
Og Tóti bakvið barinn, bestu drykki bar hann fram.
Ef vin þér fór að vanta, væni, þú hóaðir í hann.

Á Þinghús-bar, á Þinghús-bar, mér þótti best að gá,
að blanda geði & bulla og í brennivíni sulla smá.

En nú liðið er að lokum fyrir litla barinn minn.
Strákarnir hættu, seldu húsið og reksturinn.
Nú Þinghús-bar er allt annar en hann var.