Misskilinn
„Ég er ótrúgjarn, fæddur bóndi,”
ég hvað að henni og hún á mig góndi.
Ég vissi ekki hvað þá var eða er í dag.
Hún þóttist skilja en ég veit það vel,
að vitundin var frosin í hel.
Þess vegna reyni ég að gera’úr því lag.
En hún mundi aldrei þiggja mig,
þó munað og ást mína ég gæfi’henni.
Því það sem ég er, hún ekki sér.
Ég sé það núna, já, ég sé það skýrt;
að reyna á ástina getur verið dýrt.
Það fer reyndar eftir því hver það er.
ég hvað að henni og hún á mig góndi.
Ég vissi ekki hvað þá var eða er í dag.
Hún þóttist skilja en ég veit það vel,
að vitundin var frosin í hel.
Þess vegna reyni ég að gera’úr því lag.
En hún mundi aldrei þiggja mig,
þó munað og ást mína ég gæfi’henni.
Því það sem ég er, hún ekki sér.
Ég sé það núna, já, ég sé það skýrt;
að reyna á ástina getur verið dýrt.
Það fer reyndar eftir því hver það er.