Fullum bata náð
Með blýant í hönd á blað mitt ég góni,
berst ég hart við að skrifa’á það ljóð.
Sveittur ég sit í algjöru tjóni
- nei, skáldastíflan er ekki góð.
En hvað er að sjá, hvað er að gerast?
Mér heppnast hér hefur að ráða úr því.
Nú hugmyndirnar óheftar berast
& hamingjusamur er ég orðinn á ný.
Því ekkert er betra en stökur að semja
ef skapið er vont og lítil er trú.
Ef lund þín er lin þá skaltu þér temja
leik, góðan, að orðum eins og geri ég nú.
berst ég hart við að skrifa’á það ljóð.
Sveittur ég sit í algjöru tjóni
- nei, skáldastíflan er ekki góð.
En hvað er að sjá, hvað er að gerast?
Mér heppnast hér hefur að ráða úr því.
Nú hugmyndirnar óheftar berast
& hamingjusamur er ég orðinn á ný.
Því ekkert er betra en stökur að semja
ef skapið er vont og lítil er trú.
Ef lund þín er lin þá skaltu þér temja
leik, góðan, að orðum eins og geri ég nú.