Gleðileg jól
Um borgina eru skreytingar settar
& inní húsunum sitja fjölskyldur mettar.
Það eru að koma jól.
Að lífsins gæðum við beitum okkur helst að,
en samt er fólk þarna úti sem á ekki svefnstað.
Og það eru að koma jól.
Samfélaginu, við verðum því að sinna;
vinna og vinna, til að fá meira en minna.
Því það eru að koma jól.
Í Kringluna við viljum nú keyra
til að kaupa hamingjuna meira og meira.
Því það eru að koma jól.
Aukakílóin í burtu við æfum,
um leið og leiðindin með innkaupum kæfum.
Já, það eru að koma jól.
Svo er kastað sprengjum yfir þjóðir einsog Kúveit,
,,hvar endar þetta”, maður spyr sig en hver veit?
En það eru komin jól.
Og nú mamma & pabbi, sér í kjólfötin smeygja,
á meðan sveltandi börn í Afríku deyja.
En nú höldum við gleðileg jól,
því það eru komin jól;
öll sömul gleðileg jól!