Fjarlægur
Sagan er samin í dag,
úr takt við tímann.
Ég veit ekki hvað;
ég veit ekki hver.
Orðin flæða úr hyldýpi skarans.
Þau flæða
og læðast
yfir múra sjálfsvitundarinnar
og með klækjum festa sig við
tilfinningar
svívirtar!
liggja þær eftir...
Bergmál minninga úr lokuðu rými.
Komast ekki út.
Ljósið, vonin,
er sama
og var og verður.
úr takt við tímann.
Ég veit ekki hvað;
ég veit ekki hver.
Orðin flæða úr hyldýpi skarans.
Þau flæða
og læðast
yfir múra sjálfsvitundarinnar
og með klækjum festa sig við
tilfinningar
svívirtar!
liggja þær eftir...
Bergmál minninga úr lokuðu rými.
Komast ekki út.
Ljósið, vonin,
er sama
og var og verður.